Lífeindafræði

Starfssvið lífeindafræðinga er mjög fjölbreytt. Lífeindafræðingar vinna flestir við rannsóknastörf, t.d. á rannsóknastofum sjúkrahúsa og annars konar rannsóknastofum.

Andstætt því sem margir halda þá felst starf hins almenna lífeindafræðings í fleiru en því að taka blóðsýni. Þetta er reyndar hluti af starfinu hjá mörgum þeirra, en síðan eru líka margir lífeindafræðingar sem aldrei taka blóðsýni né hitta sjúklinga augliti til auglits. Flest fela störfin í sér rannsóknir á lífsýnum (t.d. blóði) frá mönnum.

Rannsóknastörfin eru fjölbreytileg því rannsóknastofurnar eru mismunandi. Innan lífeindafræðinnar eru margar greinar og getur lífeindafræðingur því sérhæft sig í ákveðinni eða ákveðnum greinum, fer þetta líka eftir því á hvers konar rannsóknastofu viðkomandi kýs að starfa. Algengustu, eða stærstu, greinarnar eru: Blóðfræði, Meinefnafræði, Sýklafræði og Líffærameinafræði. Óhætt er þó að segja að mesti vaxtarbroddurinn í dag sé í erfðavísindarannsóknum og er sameindalíffræðin (þ.e. vinna með erfðaefni) ört vaxandi grein og kjörinn vettvangur fyrir lífeindafræðinga.

Með tilkomu stórra fyrirtækja í erfðavísindarannsóknum fjölgaði mjög störfum fyrir lífeindafræðinga. Í dag er svo komið að mikil eftirspurn er eftir lífeindafræðingum á markaðnum. Lítil nýliðun hefur orðið í stéttinni á síðustu árum og hefur það líka haft áhrif á jafnvægið milli framboðs og eftirspurnar.